06.01.2012 15:21:56
Fjöldi íbúða í byggingu
Samtök iðnaðarins stóðu nýverið fyrir talningu íbúða í byggingu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Niðurstaðan er að íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar eru 1175 talsins og hafin er bygging á 244 íbúðum til viðbótar. Samtals eru þetta því 1419 íbúðir. Talið er að árlega þurfi um 1500 nýjar íbúðir inn á markaðinn og eru íbúðir í byggingu því innan við áætlaða ársþörf. Þá þarf að hafa í huga að byggingartími íbúðar í fjölbýli er 18-24 mánuðir þannig að ljóst er að íbúðir í byggingu eru langt frá því að fullnægja þörf markaðarins. Samtökin töldu einnig íbúðir í mars 2011 og var þá sambærileg tala 1648. Þó fækkun frá vori til hausts sé einungis 229 íbúðir er mikil breyting á byggingarstigi einstakra eigna og talsvert verið að vinna í ófullgerðum mannvirkjum.
06.01.2012 15:19:42
Fleiri ganga til liðs við SI
Múrarameistarafélag Reykjavíkur og Félag dúklagninga- veggfóðrarameistara ganga til liðs við Samtök iðnaðarins. Þann 21. desember s.l. voru undirritaðir samningar um aðild Múrarameistarafélags Reykjavíkur (MM) og Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara (FDV) að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður MM og Jón Ólafsson, ritari FDV skrifuðu undir samningana.
02.12.2011 11:59:46
Meistarafélag húsasmiða gengur til liðs við Samtök iðnaðarins
Nýlega var undirritaður samningur um aðild Meistarafélags húsasmiða að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Grímur Sæmundsen, varaformaður SA og Baldur Þór Baldvinsson, formaður MH skrifuðu undir samninginn. „Þetta er merkilegur áfangi fyrir byggingariðnaðinn í landinu“ segir Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI. Í sama streng tekur Baldur Þór, formaður MH sem væntir mikils af auknum samtakamætti og slagkrafti sameinaðra samtaka.
02.12.2011 11:55:39
Desemberuppbót 2011 greiðist eigi síðar en 15. desember
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 48.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 55.400. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2011, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall
28.10.2011 11:21:11
Litamálun ehf bætist í hóp vottaðra fyrirtækja
Litamálun ehf er komin í hóp þeirra fyrirtækja sem fengið hafa staðfestingu á að þau fullnægi kröfum D-vottunar í áfangaskiptri gæðavottun SI. Bjarni Þór Gústafsson löggiltur málarameistari er eigandi Litamálunar ehf. Á myndinni er Bjarni að taka við skírteini um D-vottun á sínu gæðakerfi úr hendi Ferdinands Hansen yfirmanns gæðakerfis Samtaka iðnaðarins.
« Sýni 1 - 5 af 397