Samræmdar verklýsingar
Sama verk. Sami mælikvarði.
Verklýsingar Málarameistarafélagsins lýsa verkþáttum, mælingu og uppgjöri fyrir algeng verk innanhúss og utanhúss. Vísaðu í númer verklýsingar, t.d. MMF 02.004, í tilboðsbeiðni eða verksamningi svo allir miði við sama verk.
Finndu rétta verklýsingu
Opnaðu verklýsingu til að sjá verkþætti og mælireglur, eða sæktu hana sem PDF-skjal.
Gluggar
Lökkun og málun gamalla og nýrra glugga innanhúss.
MMF01.001Lökkun gamalla glugga innanhúss, tvær umferðir
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna með akrýl/alkyd málningu.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka tvær umferðir með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.002Málun gamalla glugga innanhúss, tvær umferðir án grunns
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettmála.
- Slípa lauslega.
- Kítta þar sem við á.
- Mála tvær umferðir með akrýl/alkyd málningu.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.003Lökkun nýrra glugga innanhúss
Verkþættir
- Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
- Grunna.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettmála.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa létt.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.004Lökkun nýrra glugga innanhúss með heilspörtlun
Verkþættir
- Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
- Grunna með akrýl/alkyd málningu.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Grunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
- Slípa létt og afþurrka með klút.
- Lakka með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.005Lökkun gamalla glugga innanhúss með heilspörtlun
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Grunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með lakki glans eða matt.
- Slípa létt.
- Lakka með lakki glans eða matt.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.006Lökkun gamalla glugga innanhúss
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Grunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta í rifur.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa létt.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
- Gluggaföls málast með glugganum að innan.
Loft og veggir
Endurmálun, sandspörtlun, hraunáferð og gifsfletir.
MMF02.001Endurmálun lofta innanhúss, tvær umferðir
Verkþættir
- Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega.
- Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.002Endurmálun lofta innanhúss, þrjár umferðir
Verkþættir
- Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega.
- Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.003Endurmálun veggja innanhúss, þrjár umferðir
Verkþættir
- Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega.
- Mála þrjár umferðir með akrýlmálningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.004Endurmálun veggja innanhúss, tvær umferðir
Verkþættir
- Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega.
- Mála eina umferð með akrýl málningu.
- Mála eina umferð með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.005Sandspörtlun demantslípaðra lofta
Verkþættir
- Holufylla og skafa.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Lokaslípun.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.006Sandspörtlun demantslípaðra veggja
Verkþættir
- Holufylla og skafa.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Lokaslípun.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.007Sandspörtlun grófhúðaðra veggja
Verkþættir
- Steinslípa.
- Sópa burt ryk.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Lokaslípun.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.008Sandspörtlun grófhúðaðra lofta
Verkþættir
- Steinslípa.
- Sandspartla eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Sandspartla eina umferð.
- Lokaslípun.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.009Málun sandspartlaðra lofta
Verkþættir
- Grunna með akrýl grunni.
- Slípa lauslega.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega fyrir lokaumferð.
- Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.010Málun sandspartlaðra veggja
Verkþættir
- Grunna með akrýl grunni.
- Slípa lauslega.
- Blettspartla og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa lauslega.
- Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.011Sandspörtlun grófhúðaðra lofta og hraunáferð
Verkþættir
- Steinslípa.
- Sandspartla tvær umferðir.
- Slípa lauslega.
- Hraunáferð með sandspartli.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.012Sandspörtlun demantslípaðra lofta og hraunáferð

MMF02.013Málun sandspartlaðra lofta með hraunáferð
Verkþættir
- Grunna með akrýl grunni.
- Slípa lauslega.
- Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Loft mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.014Gifsveggir og loft spörtlun og málun
Verkþættir
- Leggja pappírsborða í límspartl.
- Spartla samskeyti og skrúfugöt.
- Slípa lauslega.
- Spartla samskeyti og skrúfugöt.
- Lokaslípun.
- Grunna með akrýlgrunni.
- Slípa lauslega.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Slípa lauslega.
- Blettspartla.
- Blettmála.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum eða loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.015Gifsveggir og loft heilspörtlun
Verkþættir
- Leggja pappírsborða í spartl.
- Spartla samskeyti eina umferð.
- Slípa lauslega.
- Heilspartla eina umferð.
- Lokaslípun.
- Grunna með akrýlgrunni.
- Blettspartla.
- Blettmála.
- Slípa lauslega.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Slípa lauslega.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum eða loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.016Gifsloft hljóðeinangrandi
Verkþættir
- Spartla tvær umferðir í skrúfugöt.
- Slípun.
- Grunna með akrýlgrunni.
- Slípa lauslega.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Slípa lauslega fyrir lokaumferð.
- Mála eina umferð með akrýlmálningu.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
- Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
Hurðir og karmar
Lökkun hurða, karma og lista innanhúss.
MMF03.001Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss, ein umferð
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
- Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
- Karmar mælast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
- Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.002Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss, tvær umferðir
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettgrunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa lauslega.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
- Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
- Karmar mælast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
- Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.003Lökkun nýrra hurða, karma og lista innanhúss, tvær umferðir
Verkþættir
- Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
- Grunna með akrýl/alkyd málningu.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Blettmála.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa létt.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
- Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
- Karmar og listar mælast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
- Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.004Lökkun nýrra hurða, karma og lista innanhúss, heilspörtlun
Verkþættir
- Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
- Grunna.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Grunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa létt og afþurrka með klút.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
- Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
- Karmar og listar mælast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
- Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.005Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss með heilspörtlun
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Grunna.
- Slípa.
- Blettspartla með lakkspartli og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Heilspartla og slípa.
- Grunna.
- Slípa undir lakk.
- Kítta þar sem við á.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Slípa létt.
- Lakka með glans eða möttu lakki.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
- Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
- Karmar mælast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
- Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
Steinfletir
Endurmálun og nýmálun steyptra flata.
MMF05.001Endurmálun steinflata
Verkþættir
- Háþrýstiþvottur (150-320 bar).
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Yfirfara steypuskemmdir og lausan múr á flötum, köntum og vatnsbrettum, loka sprungum, viðgerð á járnpunktum og járnum (við miklar skemmd skal fá múrara til að sinna þeim verklið.)
- Vatnsverja alla viðgerðarfleti.
- Grunna yfir viðgerðarfleti og beran stein.
- Þykkhúð á alla lárétta fleti og fínar sprungur.
- Blettun yfir viðgerðarfleti.
- Mála tvær umferðir (fer eftir efnisvali og málningarkerfum).
- Frágangur og þrif.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF05.002Nýmálun steinflata
Verkþættir
- Léttur háþrýstiþvottur (150-320 bar eftir þörfum)
- Steinrif á veggflötum og köntum.
- Yfirfara veggfleti fyrir málun. Gæta að rýrnunarsprungum, steypuhreiðri og járni sem liggur of utarlega í yfirborðssteypu. Fá álit múrara áður en slíkt er málað.
- Vatnsverja alla steypufleti.
- Grunnun allra steyptra flata.
- Mála tvær umferðir (fer eftir efnisvali og málningarkerfum).
- Frágangur og þrif.
Mæling og uppgjör
- Veggir mælast í fermetrum.
- Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
- Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
Tréverk
Timburverk, olíubornar hurðir og gluggar, pallar og skjólveggir.
MMF06.001Endurmálun timburverks: gluggar, þakkantar o.fl.
Verkþættir
- Rakamæla (verður að vera undir 17%).
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Slípa.
- Metta beran við með grunnolíu.
- Grunnun.
- Yfirfara kíttun milli steins og viðar (á við um glugga).
- Málun tvær umferðir með viðarvörn (auka umferð yfir botnlista á gluggum).
- Glerþrif, tiltekt og frágangur.
Mæling og uppgjör
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum ásamt köntum (reiknast sér í lengdarmetrum).
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
MMF06.002Olíubornar hurðar og gluggar
Verkþættir
- Hreinsa og skafa lausa málningu.
- Grámahreinsun við mikinn gráma.
- Slípa.
- Olíubera 2-3 umferðir (eða þangað til að viður er fullmettaður), umframolía þurrkuð af á milli umferða.
- Glerþrif, tiltekt og frágangur.
Mæling og uppgjör
- Reiknast samkvæmt tilboði eða í tímavinnu.
- Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
- Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
MMF06.003Pallar og skjólveggir
Verkþættir
- Léttur háþrýstiþvottur.
- Grámahreinsun og þvottur.
- Slípun ýfinga.
- Yfirfara skrúfur og nagla.
- Pallaolía, hálfþekjandi eða fullþekjandi.
- Frágangur og tiltekt.
Mæling og uppgjör
- Pallar og skjólveggir eru reiknaðir samkvæmt snertiflötum flata í fermetrum.
- Taka þarf fram ef málað er bakhlið tvöfaldra skjólveggja, en það reiknast sérstaklega.
Engin verklýsing fannst.
Prófaðu annað leitarorð, t.d. „gifs“, „hurðir“ eða númer verklýsingar.